Menning

Samdi lög við ljóð ömmu sinnar Jakobínu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Grímur Helgason klarinett, Margrét Hrafnsdóttir sópran, Ave Kara Tonisson harmónikka og Ólöf Sigursveinsdóttir selló.
Grímur Helgason klarinett, Margrét Hrafnsdóttir sópran, Ave Kara Tonisson harmónikka og Ólöf Sigursveinsdóttir selló.
Lagaflokkurinn Heimtur samanstendur af ellefu lögum eftir Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur tónlistarmann, smið, básúnuleikara og málmblásturskennara, við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur (1918-1994) ömmu hennar.

Hann verður frumfluttur í heild sinni í Háteigskirkju á morgun klukkan 17.

Með ömmu Gömul mynd af ljóðskáldi og verðandi tónskáldi.
„Ég byrjaði að fást við þetta verk árið 2009 þegar ég fékk pöntun frá Margréti Hrafnsdóttur sópransöngkonu og Ólöfu Sigursveinsdóttur sellóleikara. Þær vantaði ný þjóðlög,“ segir Ingibjörg Azima og heldur áfram:

„Ólöf er mjög gömul vinkona mín og ég missti það einhvern tíma út úr mér að ég hefði samið eitt lag við ljóð eftir ömmu. Hún dreif í að sækja um styrk hjá Hlaðvarpanum og fékk styrk þannig að ég var allt í einu komin með heilmikið verkefni og laun.“

Ingibjörg kveðst aðeins hafa verið smeyk um að það mundi þvælast fyrir henni að þetta væru ljóð eftir ömmu hennar. En það reyndist óþarft.

„Um leið og ég fór að vinna með ljóðin gáfu sum þeirra frá sér lög og önnur gerðu það ekki fyrir mig. Þá eftirlæt ég öðrum þau.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.