Menning

Níu bækur tilnefndar til Fjöruverðlaunanna

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Guðrún Eva Mínervudóttir, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Elísabet Jökulsdóttir eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta.
Guðrún Eva Mínervudóttir, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Elísabet Jökulsdóttir eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta.
Dómnefndir Fjöruverðlaunanna kynntu niðurstöður sínar í Borgarbókasafninu í gær. Fjöruverðlaunin eru bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi og eru þau veitt árlega fyrir bækur í þremur flokkum: fagurbókmenntum, fræðibækókum og ritum almenns eðlis og barna- og unglingabókmenntum.



Tilgangur Fjöruverðlaunanna er að stuðla að aukinni kynningu á ritverkum kvenna og hvetja konur í rithöfundastétt til dáða. Verðlaunin voru fyrst afhent 2007.

Eftirfarandi höfundar og bækur hlutu tilnefningu að þessu sinni:

Fagurbókmenntir

Englaryk Guðrún Eva Mínervudóttir

Lóaboratoríum Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett Elísabet Jökulsdóttir

Fræðibækur og rit almenns eðlis

Saga þeirra, sagan mín Helga Guðrún Johnson

Kjaftað um kynlíf Sigga Dögg

Ofbeldi á heimili – Með augum barna Ritstjóri Guðrún Kristinsdóttir

Barna- og unglingabókmenntir

Á puttanum með pabba Kolbrún Anna Björnsdóttir og Vala Þórsdóttir

Hafnfirðingabrandarinn Bryndís Björgvinsdóttir

Vinur minn vindurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×