Menning

Með franska demanta í farteskinu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigrún ætlar að taka glæsiaríur í Norðurljósasalnum.
Sigrún ætlar að taka glæsiaríur í Norðurljósasalnum. Vísir/GVA
„Ég ætla að taka nokkrar fallegar aríur úr frönskum óperubókmenntum,“ segir Sigrún Pálmadóttir sópransöngkona um efni hádegistónleika Íslensku óperunnar í dag.

Hún nefnir fjallaaríu Micaëlu úr Carmen eftir Bizet, aríu Amors úr Orfeus og Evridís eftir Gluck og skartgripaaríu Marguerite úr Faust eftir Gounod og bætir við að svo sem eitt jólalag gæti hæglega slæðst með.

Sigrún sló eftirminnilega í gegn í hlutverki Víólettu Valéry í La traviata hjá Íslensku óperunni vorið 2008, og hlaut Grímuna í flokknum Söngkona ársins fyrir hlutverkið.

Hún er búsett á Ísafirði og kennir þar meðal annars 17 nemendum söng en var lent í borginni með þessa frönsku demanta í farteskinu þegar hringt var í hana.

Það er Antonia Hevesi píanóleikari sem spilar undir hjá Sigrúnu á hádegistónleikunum í Norðurljósum í Hörpu í dag klukkan 12.15. Aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×