Erlent

Dádýr stökk í gegnum glugga - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Gestir og starfsmenn hótels í York í Nebrasska í Bandaríkjunum brá heldur í brún þegar dádýr stökk í gegnum lokaðan glugga á húsinu. Atvikið náðist á myndband og virðist dýrið koma á fleygiferð og ekki hika við að stökkva í gegnum glerið og inn í matsal hótelsins.

Þá hljóp dádýrið inn í anddyri hótelsins og um ganga þess þar sem gestir og starfsmenn reyndu að stöðva það.

Á endanum tókst að loka dýrið í þvottahúsinu og þaðan fór það út á endanum. Engan, þar á meðal dádýrið, sakaði af látunum.

Don Hoehne, eigandi hótelsins, segir þó að dádýrið hafi stungið af án þess að greiða fyrir skemmdirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×