Norska stjórnin hefur samþykkt nýstárlegar stórframkvæmdir í samgöngum 14. mars 2015 13:00 Skipagöngin verða 1,7 kílómetra löng, 37 metrar á hæð og 36 metrar á heildarbreiddina. Mynd/stad skipstunnel
Norðmenn ætla að gera skipagöng í gegnum skagann Staðarnes, Stad, sem er í vesturhluta Noregs, nyrst í Sogni og Firðafylki. Skipaskurðir eru algengir en þetta verða fyrstu skipagöng sögunnar. Göngin verða 1,7 kílómetrar þar sem nesið er mjóst, sem jafnframt er innst á nesinu. Reiknað er með að hundrað skip eigi að geta siglt í gegnum göngin á hverjum sólarhring. Heildarkostnaður er áætlaður 2,1 milljarður norskra króna, en það jafnast á við ríflega 35 milljarða íslenskra. Byggingartíminn er áætlaður fjögur til fimm ár. Göngin sjálf verða 37 metrar á hæð, eða álíka og hálf hæð Hallgrímskirkjuturns, og 36 metrar á breidd, en skipaskurðurinn innan þeirra verður 26,5 metra breiður og 12 metra djúpur. Siglingaleiðin fyrir vestasta hluta Noregs styttist þar með til muna og verður jafnframt öruggari því verstu veðrin eru einmitt við utanvert nesið.
Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Sjá meira