Erlent

Kona fannst myrt við hlaupastíg norður af Stokkhólmi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
21 árs kona fannst látin við hlaupastíg í Runby, norður af Stokkhólmi, í nótt. Að sögn lögreglu bendir allt til þess að hún hafi verið myrt.

Lögregla rannsakar lát konunnar en enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.

Konan fór um kvöldmatarleyti í gær að hlaupastígnum þar sem hún ætlaði að skokka stutta vegalengd, eða þrjá til fimm kílómetra, að sögn ættingja hennar.

Þegar hún hafði ekki skilað sér heim um þremur tímum síðar hófu ættingjar hennar að henni leit og gerðu lögreglu viðvart.

Leitarhundur fann hana svo um klukkan tvö að staðartíma í nótt.  Svæðið var allt girt af í nótt á meðan tæknideild lögreglu leitaði eftir fótsporum.

Lögregla hefur lagt hald á tvo bíla, en í frétt SVT kemur fram að lögregla vilji ekki greina frá því hvort annar þeirra tilheyri konunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×