Erlent

Árás á flugvöllinn í Kabúl

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Frá Kabúl. Myndin er frá sprengjuárás sem átti sér stað árið 2008.
Frá Kabúl. Myndin er frá sprengjuárás sem átti sér stað árið 2008. AFP
Þrír létu lífið þegar sjálfsvígssprengjumaður sprengdi sig í loft upp við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í gær.

Árásin átti sér stað við inngang flugvallarins sem hýsir hernaðarfarartæki. Tvær unglingsstúlkur dóu í árásinni og átján manns slösuðust.

Talíbanahreyfingin lýsti yfir ábyrgð á verknaðinum með tölvupóstskeyti til fjölmiðla.

Þetta er önnur árás Talibana í Kabúl á einni viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×