Erlent

Mugabe flutti ranga ræðu við þingsetningu

Atli Ísleifsson skrifar
Robert Mugabe við þingsetningu fyrr í dag.
Robert Mugabe við þingsetningu fyrr í dag. Vísir/AFP
Robert Mugabe, forseti Simbabve, flutti ranga ræða við setningu simbabveska þingsins fyrr í dag.

Hinn 91 árs forseti hafði flutt sömu ræðu þann 25. ágúst síðastliðinn þar sem hann hafði lagt línurnar fyrir næsta ár. Sagðist hann treysta á að Kínverjar myndu aðstoða landið við að koma efnahagnum í jafnvægi á nýjan leik.

Talsmaður forsetans sagði að um rugling á forsetaskrifstofunni hafi verið að ræða og að Mugabe myndi fylgja réttu ræðuna frá hóteli í höfuðborginni Harare síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×