Fyrrverandi tenniskappi handtekinn fyrir mistök: Segir málið lykta af kynþáttafordómum Birgir Olgeirsson skrifar 11. september 2015 23:33 Lögreglan í New York hefur beðið tenniskappann James Blake afsökunar á handtökunni. Vísir/YouTube/EPA
Lögregluembætti New York-borgar í Bandaríkjunum hefur gefið út myndband úr öryggismyndavél sem sýnir þegar fyrrverandi tenniskappinn James Blake var handtekinn fyrir mistök. Blake var á leið á opna bandaríska meistaramótið í tennis, US Open, þegar óeinkennisklæddur lögreglumaður sneri Blake í jörðina og handjárnaði hann. Lögreglumaðurinn heitir James Frascatore en hann hefur áður verið ásakaður um harðræði í garð borgara. Hann fær ekki að sinna eftirliti á meðan mál hans er í rannsókn. Lögreglustjórinn í New York, William Bratton, sagði Blake hafa litið út eins og tvíburabróðir manns sem er eftirlýstur og hefur lögreglustjórinn beðið Blake afsökunar. Blake heldur því fram að lögreglumaðurinn hafi beitt hann harðræði við þessa handtöku á miðvikudag. Blake hefur sagt við fjölmiðla að hann telji líkur á því að kynþáttafordómar hafi átt þátt í því að hann var handtekinn. „Ég er staðráðinn í að nýta þetta ömurlega atvik til viðhorfsbreytingar í samskiptum lögreglu og borgaranna sem hún þjónar. Svona atvik eru allt of algeng,“sagði Blake í tilkynningu til fjölmiðla fyrr í dag.
Mest lesið Albert sýknaður Innlent Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Innlent Efast um að málinu verði áfrýjað Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Erlent Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjá meira