Erlent

Rútu keyrt á olíuflutningabíl

Samúel Karl Ólason skrifar
57 létust og fjórir slösuðust.
57 létust og fjórir slösuðust. Vísir/AP
57 manns létu lífið í Pakistan í gær þegar rútu var ekið á olíuflutningabíl. Embættismenn á svæðinu segja flest líkin vera svo illa brennd að ómögulegt sé að bera kennsl á þau. DNA rannsóknir þarf til þess.

AP fréttaveitan ræddi við mann sem sagði að systir hans, tvær frændur og fjölskyldur þeirra hafi verið um borð í rútunni, sem brann til kaldra kola.

„Alls voru níu úr minni fjölskyldu í rútunni og enginn þeirra lifði af,“ sagði Abdul Hafeez.

Slæm bílslys eru mjög algeng í Pakistan þar sem ökumenn eru oft lítið þjálfaðir og vegir eru í slæmu ásigkomulagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×