Erlent

Ók bíl á gangandi vegfarendur í Jerúsalem

Atli Ísleifsson skrifar
Atvikið hafi átt sér stað nærri landamærastöð þar sem sambærilegar árásir áttu sér stað á síðasta ári. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Atvikið hafi átt sér stað nærri landamærastöð þar sem sambærilegar árásir áttu sér stað á síðasta ári. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/EPA
Fjórar lögreglukonur og gangandi vegfarandi slösuðust eftir að maður ók bíl sínum inn í hóp fólks í ísraelsku borginni Jerúsalem í morgun.

Í frétt BBC segir að atvikið hafi átt sér stað nærri landamærastöð þar sem sambærilegar árásir áttu sér stað á síðasta ári.

Að sögn lögreglu er árásarmaðurinn Palestínumaður frá austurhluta Jerúsalem og reyndi að stinga fólkið eftir að hafa ekið á það.

Maðurinn er alvarlega slasaður eftir að hafa verið skotinn af lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×