Erlent

Tveir látnir eftir skotárás á Borgundarhólmi

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla telur einn hinna látnu hafa verið árásarmanninn.
Lögregla telur einn hinna látnu hafa verið árásarmanninn. Vísir/AFP
Tveir eru látnir og einn særður eftir skotárás á dönsku eyjunni Borgundarhólmi í Eystrasalti í nótt. Ekstrabladet greinir frá árásinni.

Illa særður 68 ára karlmaður tilkynnti lögreglu um málið um klukkan hálf fimm í nótt að staðartíma.

Þegar lögregla kom á vettvang í miðbæ Rønne fundust hinir tveir látnu.

Lögregla telur einn hinna látnu hafa verið árásarmanninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×