Erlent

Móðir og þrjú börn fórust í flugslysi

Atli Ísleifsson skrifar
Sjúkralið að störfum á vettvangi fyrr í kvöld.
Sjúkralið að störfum á vettvangi fyrr í kvöld. Vísir/AFP
Fjórir létust í flugslysi skammt frá Argentan í norðvesturhluta Frakklands síðdegis í dag.

Í frétt Ouest-France segir að 39 ára kona og þrjú börn hennar hafi farist í slysinu.

Konan flaug lítilli einkaflugvél og börn hennar – þrettán, ellefu og níu ára gömul – voru einu farþegarnir um borð.

Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×