Erlent

Nashyrningur gekk laus í borg í Nepal - Myndbönd

Samúel Karl Ólason skrifar
Nashyrningurinn hljóp á eftir fólki um götur borgarinnar.
Nashyrningurinn hljóp á eftir fólki um götur borgarinnar.
Ein kona lét lífið og minnst sex eru slasaðir eftir að nashyrningur gekk berserksgang í borginni Hetauda í Nepal í morgun. Nashyrningurinn elti íbúa víða um borgina og fór meira að segja inn á sjúkrahús.

Íbúar reyndu að reka nashyrninginn á brott með því að flauta á bílum sínum og berja trommur, en nashyrningurinn lét ekki segjast. Samkvæmt AP fréttaveitunni er nú sérstakt viðbragðsteymi á leið á vettvang og er markmið þeirra að svæfa dýrið.

Konan sem lét lífið var 61 árs gömul, en nashyrningurinn hljóp hana niður við jaðar borgarinnar. Um 135 þúsund manns búa í Hetauda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×