Prófanir á nýju lyfi við HIV lofa góðu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. apríl 2015 23:38 Lyfið er í raun mótefni sem á að draga úr veirumagni HIV í blóði sjúklingsins. Vísir/AFP/Getty
Fyrstu prófanir á nýju lyfi við HIV-veirunni lofa góðu ef marka má niðurstöður sem birtar voru í tímaritinu Nature á dögunum. Lyfið er í raun mótefni sem á að draga úr veirumagni HIV í blóði sjúklingsins. Það er fengið með því að klóna ónæm prótín úr einstaklingum sem hafa mjög sterka náttúrulega vörn gegn sjúkdómnum.Í frétt BBC kemur fram að flestir myndi náttúruleg mótefni gegn HIV-veirunni en í fæstum tilfellum er sú vörn nægilega sterk til að halda veirunni í skefjum. Rannsóknarteymið fann þó nokkra einstaklinga sem mynduðu óvenjulega sterkt mótefni og klónuðu þeirra prótín fyrir lyfið sem þeir eru að þróa. Hjá sjúklingum sem fengu hvað mest af mótefninu minnkaði veirumagn verulega. Mismunandi var hversu lengi vörnin virkaði í sjúklingum en í sumum tilfellum var hún virk í allt að fjórar vikur. Vísindamennirnir segja niðurstöður sínar benda eindregið til þess að mótefnið geti virkað vel í baráttunni við HIV-veiruna. Þó mæla þeir með því að lyf af þessu tagi verði notað með öðrum lyfjum og mótefnum þar sem veiran stökkbreytist auðveldlega. Það hafi verið tilfellið hjá sumum sjúklingum sem prófuðu nýja mótefnið sem hætti þar af leiðandi að virka. Nánar má lesa um niðurstöður rannsóknarinnar á vef Nature.
Mest lesið Sendur í leyfi Innlent „Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Innlent Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi Innlent Jón Magnús gefur kost á sér Innlent Ólafur vill leiða listann Innlent Alma Möller skellir sér í pólitíkina Innlent Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Erlent „Loksins er lokið lengsta dauðastríði nokkurrar ríkisstjórnar“ Innlent Þau skipa uppstillingarnefnd Sjálfstæðismanna í Reykjavík Innlent Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn Innlent Fleiri fréttir Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Sjá meira