Erlent

Jónas Elfar fannst látinn nærri Kolding

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jónas Elfar Birgisson
Jónas Elfar Birgisson Mynd/TV2
Danska lögreglan staðfesti fyrr í dag að maður sem fannst látinn á akri nærri Kolding í Danmörku á sunnudag hafi verið Íslendingurinn Jónas Elfar Birgisson. Þetta kemur fram á vef TV2.

Lýst var eftir honum í Danmörku í lok síðasta mánaðar en þegar hann fannst hafði hvorki heyrst né spurst til hans í rúman mánuð.

Lögreglan hefur ekki viljað gefa upp dánarorsök Jónasar en hefur þó staðfest að andlát hans hafi ekki borið að með saknæmum hætti.


Tengdar fréttir

Íslendingur horfinn í Danmörku

Ekkert hefur spurst til Jónasar Elfars Birgissonar frá því 18. febrúar. Danska lögreglan hefur lýst eftir honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×