Erlent

43 drepnir í skotárás í Pakistan

Atli Ísleifsson skrifar
Rútan sem um ræðir.
Rútan sem um ræðir. Vísir/AFP
Lögregla í Pakistan hefur upplýst að 43 hafi verið drepnir og tuttugu særst eftir að sex árásarmenn á mótorhjólum réðust á rútu sem flutti hóp sjíamúslíma í borginni Karachi fyrr í dag.

Í frétt CNN segir að Jundallah, uppreisnarhópur súnnímúslíma, hafi lýst yfir ábyrgð á árásinni og segjast hyggja á fleiri.

Árásarmennirnir notuðust við 9 millimetra skammbyssur og höfðu flest fórnarlambanna verið skotin í höfuðið.

Eftir árásina var rútunni ekið að sjúkrahúsi þar sem læknar hlúðu að fórnarlömbunum. Byssuför þöktu hliðar rútunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×