Erlent

Níutíu drepnir í loftárás í Jemen

Atli Ísleifsson skrifar
Loftárásin er sú mannskæðasta í landinu síðan í byrjun aprílmánaðar.
Loftárásin er sú mannskæðasta í landinu síðan í byrjun aprílmánaðar. Vísir/AFP
Níutíu manns voru drepnir í loftárás sádi-arabíska hersins í Jemen. Að sögn yfirvalda var ráðist á herstöð í höfuðborginni Sanaa.

Loftárásin er sú mannskæðasta í landinu síðan í byrjun aprílmánaðar. Þrjú hundruð manns særðust í árásinni.

Uppreisnarmenn Húta náðu höfuðborginni Sanaa á sitt vald í september síðastliðinn. Bandalag ríkja, undir forystu Sádi-Arabíu, hófu loftárásir á stöðvar uppreisnarmanna í lok mars.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×