Erlent

Þrjátíu ákærðir í Makedóníu fyrir hryðjuverk

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Kumanovo í norðurhluta Makedóníu.
Frá Kumanovo í norðurhluta Makedóníu. Vísir/AFP
Þrjátíu uppreisnarmenn hafa verið ákærðir fyrir hryðjuverk í kjölfar bardaga við lögreglumenn í Makedóníu um helgina. Átjá þeirra eru frá Kósóvó.

Átta lögreglumenn og fjórtán uppreisnarmenn eru látnir eftir að til átaka kom milli hóps vopnaðra manna og lögreglu í bænum Kumanovo í norðurhluta Makedóníu.

Í frétt VG segir að margir hinna ákærðu hafi áður verið eftirlýstir af alþjóðalögreglunni þó að ekki liggi fyrir um ástæður þess.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×