Erlent

Skaut fjóra til bana og sjálfan sig í Sviss

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lögreglan telur fjölskyldudeilur vera ástæða árásarinnar.
Lögreglan telur fjölskyldudeilur vera ástæða árásarinnar. Vísir/AFP
Fjórir voru skotnir til bana í norðurhluta Sviss í gær. Lögreglan telur að fjölskyldudeilur hafi verið ástæða þess að maður hóf skothríð í og við íbúðarhús í úthverfi Würenlingen.

Nágrannar tilkynntu lögreglunni um skothvelli seint í gærkvöldi en þegar lögreglumenn bar að garði fann hún fimm lík, en byssumaðurinn tók sitt eigið líf.

Lögreglustjórinn Michael Leupold sagði á blaðamannafundi fyrr í dag að byssumaðurinn hafi verið skyldur minnst hluta fórnarlambanna. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×