Milljónum köngulóa rigndi niður í Ástralíu Atli Ísleifsson skrifar 20. maí 2015 11:24 Íbúum leist ekkert á blikuna þegar þeir sáu að verurnar þöktu hús þeirra og stór svæði í kring. Vísir/EPA
Milljónum köngulóa rigndi niður í Southern Tablelands, skammt frá áströlsku höfuðborginni Canberra, fyrr í mánuðinum. Gáttaðir íbúar óttuðust í smá stund að köngulær hefðu gert innrás á landið en atvikið hefur þó náttúrulegar skýringar. Íbúum leist ekkert á blikuna þegar þeir sáu að verurnar þöktu hús þeirra og stór svæði í kring. Ian Watson, íbúi í bænum Goulburn, lýsti því þannig að svo virtist sem heimili hans hefði verið yfirgefið og tekið yfir af köngulóm. „Það var þakið litlum köngulóm og þegar ég leit til skýja var líkt og göng af kóngulóavef risi nokkur hundruð metra upp til himins.“Fögur sjón Watson segir þetta hafa verið fagra sjón en á sama tíma ergjandi. „Það var ekki mögulegt að fara út án þess að fá köngulóavef á þig. Og ég er líka með skegg svo þær voru alltaf af þvælast í skegginu.“ Akrar í kringum bæinn Wagga Wagga voru þaktir köngulóavefjum en nokkur flóð eru nú á svæðinu.Nota silkið til að ferðast milli staðaÍ samtali við Sydney Morning Herald segja vísindamenn fyrirbrigðið skýrast af því að köngulóaungar fari efst á gróðurinn vegna flóða og þannig forðast drukknun. Svo nýti þeir silkið og vindinn til að ferðast milli staða og þannig virðist sem köngulóm hafi rignt. Að sögn er þetta algengt í náttúrunni þó að óvenjulegt sé að svo margar köngulær geri slíkt á sama tíma og skilji þar með eftir þessi spor. Þetta fyrirbæri hefur verið nefnt vetrarkvíði á íslensku og er talið boða harðan vetur.Vísir/EPAVísir/EPAVísir/EPAVísir/EPA
Mest lesið Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum Innlent Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Erlent Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Erlent Nýr aðstoðarmaður rétt fyrir ríkisstjórnarslit Innlent Funda um lausu ráðuneytin og boðað til ríkisstjórnarfundar Innlent „Falsfréttin“ og „þvælan“ sem raungerðist hratt Innlent „Kemur í ljós“ hvort boðaðir ráðherrar mæti Innlent „Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Innlent Getur ekki orða bundist yfir útspili Vinstri grænna Innlent Guðmundur Árni stefnir á oddvitasætið í Suðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Afnema tímabundið réttinn til að óska hælis Birtu gögn um heilsu Harris og sjúkrasögu hennar Sjá meira