Erlent

Fjórtán ára ógnaði 29 samnemendum og kennara með byssu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Drengurinn hélt fólkinu í gíslingu í skólastofu. Mynd tengist frétt ekki beint.
Drengurinn hélt fólkinu í gíslingu í skólastofu. Mynd tengist frétt ekki beint. Vísir/AFP
Fjórtán ára drengur í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum hélt 29 samnemendum sínum og kennara í gíslingu í skólastofu síðdegis í gær. Drengurinn ógnaði hópnum með byssu. Lögreglan náði að tala drenginn inn á að sleppa öllum lausum og að gefa sig sjálfan fram. Engan sakaði.

Kennari drengsins er sagður hafa náð að sannfæra hann um að hleypa ekki fleiri nemendum inn í kennslustofuna, heldur einungis halda þeim 29 sem þegar voru þar inni í gíslingu. Nemendurnir sem hann sendi á brott gátu gert lögreglu viðvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×