Erlent

Talið að allt að 20 hafi látist

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá slysstað á laugardag.
Frá slysstað á laugardag. vísir/epa
Talið er að allt að 20 manns hafi látist í flugslysinu á flugsýningu í Sussex í Englandi á laugardag. Herþota af gerðinni Hawker Hunter hrapaði þá til jarðar og lenti á bílum á þjóðvegi skammt frá flugsýningunni.

Lögregla hefur staðfest að ellefu létust í slysinu en óttast er að fleiri finnist látnir í dag þegar reynt verður að færa flak flugvélarinnar af slysstað.

Flugmaður vélarinnar lifði slysið af en hann liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Hann er reynslumikill flugmaður og hefur tekið þátt í fjölda flugsýninga í Bretlandi, að því er fram kemur á vef Guardian.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×