Tvöfaldur ríkisborgararéttur nú viðurkenndur í Danmörku Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 1. september 2015 12:59 Ráðhúsið í Kaupmannahöfn.
Í dag taka gildi í Danmörku lög sem fela í sér að tvöfaldur ríkisborgararéttur er viðurkenndur í Danmörku. Því geta nú Íslendingar sem búsettir eru í Danmörku og börn þeirra sótt um og öðlast danskan ríkisborgararétt að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Íslenska sendiráðið í Kaupmannahöfn vekur sérstaka athygli á þessu á Facebook- síðu sinni í dag. „Jafnframt munu Íslendingar, sem hafa afsalað sér íslenskum ríkisborgararétti til að öðlast danskan, geta sótt um endurveitingu íslensks ríkisborgararéttar án þess að missa þann danska. Þetta er þó háð ákveðnum skilyrðum sem fá má upplýsingar um hjá Útlendingstofnun,“ skrifar sendiráðið. Íslensk lög hafa frá árinu 2003 heimilað tvöfaldan ríkisborgararétt en að sjálfsögðu fellur þó íslenski ríkisborgararétturinn niður ef lögin í nýja landinu heimila ekki tvöfaldan ríkisborgararétt. Útlendingastofnun segir ekki mikið hafa verið um að fólk hafi skipt um ríkisborgararétt en að nú hafi það möguleika á að endurvekja réttinn hafi það afsalað sér honum. En með ríkisborgarétti fást ýmis konar mikilvæg réttindi sem eru ólík milli landa.22 ára reglan gildir enn „Hafa ber í huga að svokölluð 22-ára-regla mun gilda áfram. Í henni felst að íslenskir ríkisborgarar með fleiri en einn ríkisborgararétt, sem fæddir eru erlendis og hafa aldrei átt lögheimili á Íslandi, missa íslenskan ríkisborgararétt þegar þeir verða 22 ára gamlir. Þetta gildir þó ekki ef þeir senda Útlendingastofnun, áður en þeir ná 22 ára aldri, tilkynningu um að þeir óski eftir því að vera áfram íslenskir ríkisborgarar. Upplýsingar um danskar reglur um öðlun dansks ríkisborgararéttar, sem og umsóknareyðublað, má nálgast á heimasíðu danska dómsmálaráðuneytisins www.jm.dk og á upplýsingasíðu danskra stjórnvalda www.borger.dk. Einnig hefur Hallo Norden uppfært upplýsingar sínar um öðlun dansks ríkisborgarréttar og er sá texti aðgengilegur bæði á íslensku og dönsku á heimasíðu Hallo Norden. Útlendingastofnun svarar fyrirspurnum um íslenskan ríkisborgararétt og má t.d. senda henni slíkar fyrirspurnir á netfangið utl@utl.is. Heimasíða stofnunarinnar er www.utl.is og síminn þar er 00354 444 0900,“ segir á síðu íslenska sendiráðsins í Kaupmannahöfn.Sendiráðið vekur athygli á því að í dag, 1. september, taka gildi dönsk lög sem fela í sér að tvöfaldur ríkisborgararé...Posted by Islands Ambassade i København, DK on Tuesday, September 1, 2015
Mest lesið Albert sýknaður Innlent Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Innlent Efast um að málinu verði áfrýjað Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Erlent Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjá meira