Hundruð milljóna króna fíkniefnainnflutningur ekki fjármagnaður í gegnum banka Birgir Olgeirsson skrifar 17. september 2015 12:15 Frá aðgerðum lögreglu á Seyðisfirði í síðustu viku. Vísir
Rannsókn lögreglunnar á Austurlandi á fíkniefnafundinum í Norrænu í síðustu viku stendur enn yfir en um er að ræða eitt mesta magn af fíkniefnum sem lögreglan hefur lagt hald á. Hollenskt par var handtekið í kjölfarið og úrskurðað í gæsluvarðhald en um var að ræða áttatíu kíló af efninu MDMA, sem voru vandlega falin í niðursuðudósum, tveimur gaskútum og varadekki bifreiðar sem parið var á.Vísir sagði frá því í vikunni að verðmæti fíkniefnanna hlaupi á hundruðum milljóna króna og vaknar þá óneitanlega spurningin hvernig glæpamenn fara að því að fjármagna svona innflutning þegar jafn ströng skilyrði eru sett á flutningi fjármagns á milli landa í Evrópu.Tíu þúsund evra hámark á flugvöllum Aldís Hilmarsdóttir, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir það hluta af störfum lögreglunnar að finna út hvernig slíkur innflutningur eru fjármagnaðir. „Það er náttúrlega hluti af rannsóknum okkar að reyna að finna það út, elta það, að sjálfsögðu. En það er gefið að þegar þú ert að fjármagna eitthvað svona ólöglega þá reynir þú nú ekki að fara með það í gegnum banka,“ segir Aldís. Hún nefnir að dæmi séu um að menn hafi verið stöðvaðir með umtalsverða fjármuni á flugvöllum. Samkvæmt tollalögum er ferðamönnum sem hafa meðferðis meira en 10 þúsund evrur, sem nemur um 1,4 milljónum króna íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, eða jafnvirði í annarri mynt í peningum, ferðatékkum eða öðrum handhafabréfum við brottför eða komu til landsins skylt að gera tollgæslunni á brottfarar- eða komust að grein fyrir því.Liður í aðgerum gegn fíkniefnum Er tilgangurinn með þessari upplýsingaöflun að koma í veg fyrir peningaþvætti og er liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ólöglegri verslun með fíkniefni og baráttu gegn hryðjuverkum og annarri ógn sem steðjar þvert á landamæri. Tollgæslunni er heimilt að leggja hald á fjármuni ef grunur leikur á að þeir verði notaðir við brot gegn refsiákvæðum almennra hegningarlaga. Sambærilegar reglur gilda í öllum helstu viðskiptalöndum Íslands. Því er ljóst að með því að fara með umtalsverða fjármuni í ferðatösku úr landi er verið að taka mikla áhættu og spurning hvað er reynt í þeim efnum en Aldís segir það til í dæminu að menn hafi verið stoppaðir með töluverða fjármuni á flugvöllum. Þá er einnig þekkt að menn sendi út eignir til að fjármagna slíkan innflutning eða eigi hreinlega eignir erlendis sem nýta í fjármögnun.Söluþrýstingur til Íslands mikill Í frétt um rannsókn málsins fyrir austan, sem birtist í Fréttablaðinu á laugardag, var haft eftir heimildarmanni, sem hefur áratuga reynslu af rannsóknum, að söluþrýstingur til Íslands á hörðum fíkniefnum sé mikill. „Það verður söluþrýstingur til Íslands vegna þess að verð hér á landi er 30 – 50% hærra en í Evrópu. Efnir eru til dæmis flutt frá Brasilíu til Evrópu, þar bíða þau flutnings þar til færi gefst.“ Hann sagði það einnig óvenjulegt hversu mikið magn er flutt til landsins af fíkniefnum. „Annað hvort eru þetta algjörir amatörar, eða að þeir hafa getað leyft sér að slaka á í innflutningnum. Flutt meira og meira magn smá saman til landsins.“
Tengdar fréttir Aukin neysla á MDMA: Verðmæti efnisins í Norrænu hleypur á hundruðum milljóna Neysla á fíkniefninu MDMA hefur aukist hér á landi eftir hrun. Þetta segir yfirlæknir á Vogi en reynt var að flytja áttatíu kíló af efninu til landsins í síðustu viku. 15. september 2015 14:23 80 kíló af MDMA í niðursuðudósum, varadekki og gaskútum Annar grunuðu hefur játað að hafa vitað um tilvist efnanna og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald 14. september 2015 16:44 Segir augljóst að hollenska parið eigi sér vitorðsmenn á Íslandi Sveinn Andri Sveinsson segir lögregluna hafa gert hver mistökin á fætur öðrum í tengslum við fíkniefnafundinn mikla. 15. september 2015 15:17 Slóðin að kólna í rannsókn á smygli Urgur er innan lögreglu á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að lögregla á Austurlandi fer með forræði rannsóknar á einu umfangsmesta fíkniefnasmygli síðustu ára. Sérfræðingur í rannsóknum fíkniefnamála segir mistök í upplýsingagj 12. september 2015 07:00 Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Fleiri fréttir Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Sjá meira
Aukin neysla á MDMA: Verðmæti efnisins í Norrænu hleypur á hundruðum milljóna Neysla á fíkniefninu MDMA hefur aukist hér á landi eftir hrun. Þetta segir yfirlæknir á Vogi en reynt var að flytja áttatíu kíló af efninu til landsins í síðustu viku. 15. september 2015 14:23
80 kíló af MDMA í niðursuðudósum, varadekki og gaskútum Annar grunuðu hefur játað að hafa vitað um tilvist efnanna og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald 14. september 2015 16:44
Segir augljóst að hollenska parið eigi sér vitorðsmenn á Íslandi Sveinn Andri Sveinsson segir lögregluna hafa gert hver mistökin á fætur öðrum í tengslum við fíkniefnafundinn mikla. 15. september 2015 15:17
Slóðin að kólna í rannsókn á smygli Urgur er innan lögreglu á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að lögregla á Austurlandi fer með forræði rannsóknar á einu umfangsmesta fíkniefnasmygli síðustu ára. Sérfræðingur í rannsóknum fíkniefnamála segir mistök í upplýsingagj 12. september 2015 07:00