Erlent

Grófu sér leið út af leikskólanum til að kaupa Jagúar

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Drengirnir tveir hurfu af leiksvæðinu á meðan útivistartíma í skólanum stóð. Mynd tengist frétt ekki beint.
Drengirnir tveir hurfu af leiksvæðinu á meðan útivistartíma í skólanum stóð. Mynd tengist frétt ekki beint. Vísir/Getty Images
Tveir fimm ára gamlir drengir grófu sér leið út af leikskólalóð í Rússlandi á dögunum. Það gerðu þeir til að geta fylgt eftir áformum sínum um að kaupa sé Jagúar sportbíl, að því er rússneska blaðið Komsomolskaya Pravda greinir frá.

Drengirnir tveir hurfu af leiksvæðinu á meðan útivistartíma í skólanum stóð en þeir fundust eftir að hafa gengið tæplega tveggja kílómetra leið að bílasölu í nágrenninu.

Þeir virðast hafa undirbúið förina í nokkra daga en þeir grófu holu undir girðinguna umhverfis lóðina og sluppu þannig burt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×