Erlent

Í dómssal með þrjú börn í ísköldum bílnum fyrir utan

Atli Ísleifsson skrifar
Börnin eru fimm ára, þriggja ára og níu mánaða. Myndist tengist fréttinni ekki beint.
Börnin eru fimm ára, þriggja ára og níu mánaða. Myndist tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AP
Bandarískur karlmaður hefur verið kærður vegna brots á barnalögum eftir að hafa skilið ung börn sín eftir í bílnum í köldu veðri í rúma klukkustund á meðan hann var sjálfur í dómssal. Börnin eru fimm ára, þriggja ára og níu mánaða.

Lögreglumaðurinn Bruce Apotheker segir að vegfarandi hafi gert lögreglu kunnugt um aðstæður barnanna sem voru föst í bíl sem hafði verið lagt skammt frá dómshúsinu í bænum Newton í Massachusetts.

AP greinir frá því að mjög kalt hafi verið í veðri, um fimm stiga frost, og að bílnum hafi verið læst og ekki í gangi. Börnin voru flutt á sjúkrahús til rannsóknar.

Faðir barnanna er 38 ára og sagði fulltrúum yfirvalda frá því að hann hafi einungis verið inni í dómshúsinu í tólf mínútur. Lögregla hafnar þessu og segja hann hafa verið inni í rúma klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×