Hundruðum þúsunda kvenna nauðgað Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 12. maí 2015 12:00 Í lok stríðsins. Sovéskir hermenn í Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP
Það voru ekki bara sovéskir hermenn sem nauðguðu þýskum konum við lok seinni heimsstyrjaldarinnar og á tímanum þar á eftir, heldur einnig bandarískir. Þetta kemur fram í nýútkominni bók, Als die Soldaten kamen (Þegar hermennirnir komu), eftir þýska sagnfræðiprófessorinn og blaðamanninn Miriam Gebhardt. Í viðtali við sænska blaðið Dagens Nyheter kveðst Gebhardt hafa fundið gögn í Bæjaralandi um nauðganir bandarískra hermanna. Það hafi vakið forvitni hennar þar sem áður hafi eingöngu verið skrifað um nauðganir hermanna í Rauða hernum. Bandaríkjamenn hafi hins vegar ekki bara verið frelsarar. Gebhardt segir að í kalda stríðinu hafi nauðganir Rauða hersins verið notaðar í pólitískum tilgangi. Ekki hafi verið um að ræða samúð með konunum. Það er mat sagnfræðiprófessorsins að um 860 þúsundum þýskra kvenna hafi verið nauðgað á fyrrgreindu tímabili. Mat hennar er byggt á vitneskjunni um þann fjölda barna sem þýskar konur eignuðust með hermönnunum og að fimm prósent þeirra hafi fæðst í kjölfar nauðgunar. Að sögn Gebhardt var ekki um skipanir að ofan að ræða. Hún kveðst hafa fundið dæmi um harða dóma yfir hermönnum. Flestir hafi þó sloppið.
Mest lesið Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum Innlent Sigurður Ingi fær innviðaráðuneytið og Bjarni hin tvö Innlent Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Erlent Aðstoðarmenn ráðherra þurfa nú að líta í kringum sig Innlent Nýr aðstoðarmaður rétt fyrir ríkisstjórnarslit Innlent Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni Innlent „Ef allir gerðu þetta væri landið stjórnlaust“ Innlent Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Erlent „Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Innlent Funda um lausu ráðuneytin og boðað til ríkisstjórnarfundar Innlent Fleiri fréttir Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Afnema tímabundið réttinn til að óska hælis Sjá meira