Erlent

Sérsveitarmenn vilja ekkert með konur hafa

Samúel Karl Ólason skrifar
Sérsveitarmenn í þjálfun.
Sérsveitarmenn í þjálfun. Vísir/Getty
Bandarískir sérsveitarmenn virðast alls ekki vera tilbúnir til að leyfa konum að taka þátt í verkefnum sínum. Ash Carter, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti nýverið að opna ætti öll störf í herafla Bandaríkjanna fyrir konum, nái þær þeim viðmiðum sem eru skilyrði fyrir störfunum. Hermennirnir sjálfir telja þó að konur myndu draga úr skilvirkni sveita þeirra og leiða til þess að menn forðuðust að ganga til liðs við sérsveitirnar.

Fyrr á árinu var gerð könnun, þar sem sérsveitarmenn voru spurðir út í þá stefnu að opna öll störf fyrir konum. Fjallað er ítarlega um málið í frétt AP fréttaveitunnar.

Helmingur þeirra sem barst könnunin svöruðu henni, alls 7.600 manns, en tekið er fram að talið er líklegt að þeir sem hafi sterka skoðun á málinu séu líklegri til að hafa svarað. Þrátt fyrir það eru niðurstöðurnar voru frekar afgerandi og 85 þeirra sem tóku þátt eru mótfallnir því að leyfa konum að taka þátt í verkefnum sérsveita Bandaríkjanna um heim allan.

Sjá einnig: Konur mega taka þátt í bardögum

Rúmlega 80 prósent þeirra sögðu konur ekki búa yfir nægum líkamlegum styrk og 64 prósent þeirra sögðu þær ekki búa yfir þeim andlega styrk sem þurfi.

Sjá einnig: Fyrstu konurnar útskrifast úr einum erfiðasta skóla hersins

Einn hermaður sem svarar segist geta nefnt hundruð ástæðna fyrir því að konur geti ekki sinnt starfi hans í hernum. Þó hafi plássið verið það lítið að hann nefndi þá sem honum fannst mikilvægust.

„Ég er hundrað kíló að þyngd og 130 með búnaði mínum, sem er svipað og flestir menn í minni sveit. Ég býst við því að hver maður í minni sveit geti dregið særða menn úr skotbardaga. 60 kílóa kona getur það ekki, sama hve miklum tíma hún eyðir í ræktinni. Eigum við að búast við því að særðan mann blæði út þar sem kvenkyns hermaður gat ekki dregið hann í skjól?“

Eftir að Ash Carter tilkynnti ákvörðun sína birtu yfirmenn sérsveita Bandaríkjanna myndband þar sem þeir útskýrðu ákvörðun sína að biðja ekki um undanþágu frá því að konur fengju aðgang að sveitunum. Þar kemur einnig fram að viðmið sveitanna yrðu ekki lækkuð né yrðu sérstök viðmið gerð fyrir konur. Þær þyrftu að standast sömu kröfur og aðrir meðlimir sérsveitanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×