Vill fá 40 þjóða HM Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. nóvember 2015 17:30 Gianni Infantino. vísir/getty
Forsetaframbjóðandinn, Gianni Infantino, vill gera róttækar breytingar á HM verði hann kosinn forseti FIFA í febrúar á næsta ári. Infantino er framkvæmdastjóri UEFA og stökk óvænt í forsetaslaginn eftir að forseti UEFA, Michel Platini, var settur í 90 daga bann. Verði Platini síðan refsað af FIFA mun hann ekki geta boðið sig fram í forsetakjörinu. Infantino hefur unnið í skugga Platini í mörg ár og segist ekki ætla að berjast gegn Platini fari svo að hann geti boðið sig fram. Hann muni þá draga framboð sitt til baka. Framkvæmdastjórinn vill stækka HM um átta lið eða upp í 40. „Það hefur verið góð reynsla af því að stækka EM. Þjóðir sem hafa aldrei komist á stórmót eru komin inn og fastagestir hafa verið að sitja eftir," sagði Infantino. „Þetta fyrirkomulag breytti algjörlega keppninni. Það kom meiri ákafi í þjóðirnar. Ef mönnum er alvara með að þróa fótboltann þá verður að stækka HM." Það er ljóst að það yrði ekki hægt fyrir HM 2018 þar sem undankeppni þar er víða hafin. Svo er þegar búið að ákveða að troða 64 leikjum á 28 daga á HM 2022 í Katar. 2026 virðist því vera árið þar sem hægt yrði að stækka HM ef hugmynd Infantino hlýtur hljómgrunn.
Fótbolti Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Fleiri fréttir Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Sjá meira