Innlent

Allir með vinnu í Hornafirði

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Aðeins sex eru án atvinnu í Hornafirði sem stendur.
Aðeins sex eru án atvinnu í Hornafirði sem stendur. MYND/RAGNAR TH. SIGURÐSSON
Gífurlegur skortur er á vinnuafli í Hornafirði en í september voru aðeins sex manns þar á atvinnuleysisskrá. Atvinnuleysi telst því vera 0,5 prósent í sveitarfélaginu.

Fólki á atvinnuleysisskrá hefur fækkað um rúmlega helming frá því í apríl síðastliðnum en þá voru fjórtán manns án atvinnu.

Af hinum atvinnulausu hafa tveir verið án vinnu til skamms tíma, tveir verið án vinnu í tæplega ár og tveir verið án vinnu í meira en eitt ár.



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×