Tímabilinu í Tælandi slaufað vegna fráfalls konungsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. október 2016 22:00 vísir/getty
Mikil sorg ríkir í Tælandi vegna andláts konungsins Bhumibol Adulyadej. Í kjölfar fráfalls konungsins í síðustu viku lýsti ríkisstjórn Tælands yfir 30 daga þjóðarsorg. Íbúar landsins eiga að klæðast svörtum eða dökkum fötum á þessum tíma og sleppa því að sækja viðburði eins og tónleika eða fótboltaleiki. Og vegna þjóðarsorgarinnar ákvað Knattspyrnusamband Tælands ákvað að hætta keppni á tímabilinu þegar þrjár umferðir voru eftir. Það þýddi að Muangthong United var krýnt sem meistari og Army United, Chainat Hornbill og BBCU féllu. Þá ræðst það á hlutkesti hvort Muangthong eða Buriram United verður deildarbikarmeistari. BBCU var þegar fallið en hin tvö liðin áttu enn möguleika á að bjarga sér og voru því afar ósátt við þennan ótímabæra endi á tímabilinu. Liðin sem féllu áfrýjuðu þessari niðurstöðu. Þegar fulltrúar allra 18 liðanna í tælensku deildinni hittust var hins vegar ákveðið að standa við fyrri ákvörðun og hætta keppni. Líklegt er að þeir sem voru mótfallnir því að ljúka tímabilinu svona snemma hafi látið undan þrýstingi en í Tælandi telst það glæpur að gagnrýna eða ófrægja meðlimi konungsfjölskyldunnar. Þeir sem gerast sekir um slíkt geta átt von á fangelsisdómi. Ekki eru allir landsmenn sáttir við þessi málalok og telja að það hefði frekar átt að fresta leikjunum en að aflýsa þeim.
Fótbolti Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu Fótbolti Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Morata leið svo illa að hann gat varla reimað skóna sína Sverrir Ingi minnist Baldocks: „Þú munt alltaf eiga stað í hjarta okkar“ Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Åge ræður hvort kallað verði í Albert Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales „Annað hvort væri ég ólétt eða að hætta“ Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Þjálfari Íslands hvetur Dani til að ráða Solskjær Tekst að búa til úrslitaleik við Dani? „Við þurfum að taka okkar sénsa“ Ældi á heimavöll Sædísar sem þurfti að bíða Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Magnaður sigur City á Barcelona og Sædís mætti Juventus Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Glódís kemst ekki á verðlaunahátíðina: „Mér finnst þetta bara fáránlegt“ Mark frá Glódísi í frábærum sigri Bayern Glódís búin að skora gegn Arsenal Arnór Ingvi skoðar sín mál í janúar Jón Þór framlengir til þriggja ára „Ísak er búinn að hjálpa mér mjög mikið“ Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Þorsteinn hefur gaman að Trump en er frekar Harris megin Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Sjá meira