Vandinn er sá að Benedikt hefur svo gott sem hafnað báðum kostum. Það gerði hann síðast í athyglisverðum umræðuþætti á Stöð 2 í hádeginu. Áður var hann búinn að hafna með afgerandi hætti þeim möguleika að starfa sem þriðja hjól undir vagni í áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.

Fari svo að Guðni Th. Jóhannessyni forseti Íslands feli Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, að mynda stjórn er vandséð hvaða möguleika Bjarni hefur. Óhjákvæmilegt er annað en hann ræði við Benedikt frænda sinn í Viðreisn en þeir eru kenndir við Engeyjarættina – aðrir möguleikar eru vart í stöðunni en þá vantar þriðja flokkinn. Vandséð er hvernig Framsóknarflokkur sé það púsluspil sem fyllir uppí myndina og alls ekki ef marka má yfirlýsingar Benedikts. Hugsanleg ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar gæti steytt á því skeri.
Heimir Már Pétursson fréttamaður stjórnaði afar forvitnilegum og upplýsandi þætti þar sem leiðtogar flokkanna tjáðu sig um hugsanlegt stjórnarmynstur.
Vandséð er, miðað við yfirlýsingar fyrir kosningar og stefnumál flokkanna, hvaða stjórnarandstöðuflokkur gæti gengið í ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki og þá Viðreisn. Reyndar er bandalag stjórnarandstöðuflokkanna fyrir kosningar þannig saman skrúfað að erfitt verður fyrir nokkurn þeirra að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn án þess að litið verði á það sem svik.
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og BF?
Og ekki var annað á oddvitum flokkanna að heyra en að það væri afskaplega ólíklegt. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði að slíkt samstarf myndi enda illa fyrir sig. Fulltrúi Pírata, Björn Leví Gunnarsson gekk svo langt að útiloka þann möguleika. Og víst er að hugur Bjarna og Sjálfstæðismanna til Pírata er gagnkvæmur. Samfylkingin er of smá til að hún komi til greina sem þriðji aðili í ríkisstjórn Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks.

„En, við erum ábyrgur stjórnmálaflokkur,“ sagði Óttarr hvað svo sem má lesa úr þeim orðum. Að fórna sér til að höggva á hnúta í stjórnarmyndunarviðræðum? Reyndar virðist þetta eini möguleikinn í stöðunni.
Benedikt svo gott sem útilokar fimm flokka stjórn
Katrín Jakobsdóttir lagði áherslu á það, í leiðtogaumræðum á RÚV í nótt, þá í tengslum við það hvort ekki væri eðlilegt að Bjarni fengi stjórnarmyndunarumboð frá forsetanum að hún teldi skilaboð kjósenda ekki síður vera þau ákall um að margir kæmu að næstu ríkisstjórn. Þrátt fyrir sigur Sjálfstæðisflokksins. Hún hlýtur þar með að vera að vísa til þess að fimm flokka stjórn væri síður en svo útilokað.
En, Benedikt varpaði einskonar sprengju í oddvitaviðræðum í hádeginu á Stöð 2. Þar nánast útilokaði hann slíka stjórn. Og telur að bæði hafi kjósendur hafnað ríkisstjórninni sem og því bandalagi sem hann kennir við Pírata. Og sjálfum hugnaðist sér ekki fimm flokka ríkisstjórnarmynstur.

Viðreisn í bobba
Þannig er komin upp sérkennileg staða fyrir Viðreisn og kjósendur þess flokks. Ýmsar ástæður eru fyrir stofnun Viðreisnar, ein sú helsta er óánægja fjölmargra (Sjálfstæðismanna) með það hvernig ríkisstjórnin höndlaði mál sem snéru að aðildarviðræðum við ESB. Allir helstu leiðtogar þeirrar ríkisstjórnar sem nú er að fara frá hétu því hátíðlega að örlög þeirra viðræðna myndu ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það mál var hins vegar afgreitt án aðkomu þjóðarinnar, með einhliða bréfi Gunnars Braga Sveinssonar þá utanríkisráðherra. Þrátt fyrir fjöldamótmæli við Austurvöll og eina stærstu undirskriftasöfnun sem fram hefur farið hér á landi var stjórnarflokkunum ekki hnikað.
Hvað sem líður skýringum Bjarna á hinum pólitíska ómöguleika er ljóst að margir kjósendur töldu sig illa svikna. Þetta er ein helsta ástæða fyrir stofnun Viðreisnar.

Blíðari tónn gagnvart Sjálfstæðisflokki
Nú er kominn blíðari tónn í Benedikt gagnvart Sjálfstæðisflokknum en var í kosningabaráttunni og Þorsteinn Víglundsson, oddviti Viðreisnar kaus að túlka niðurstöðu kosninganna í nótt á þá leið að kjósendur væru að hafna hugmyndum um vinstri stjórn. Benedikt hefur ítrekað, í dag og í nótt, undirstrikað að hann útiloki ekki samstarf við neina flokka, þó hann hafi útilokað ákveðin mynstur.
En, til að stjórnarmyndunarkapalinn gangi upp verður það ekki gert án aðkomu Sjálfstæðisflokks með sinn 21 þingmann. Benedikt gekk hins vegar eins langt og komist verður til að greina Viðreisn frá Sjálfstæðisflokki í aðdraganda kosninga, en honum hafði þá verið núið því um nasir að Viðreisn væri ekki annað en útibú, eða klofningsframboð Sjálfstæðisflokksins sem myndi hlaupa beint í sömu sæng eftir kosningar.
Það verður ekki slík ríkisstjórn
Og sá var einmitt rauði þráðurinn í hinu fræga útvarpsviðtali Benedikts við Frosta Logason og Mána Pétursson í Harmageddon sem gengu hressilega á Benedikt með einmitt þetta atriði.
„Ég hef sagt að það sé afar ólíklegt. Og eins nálægt því og loforð er. Ég sé það ómögulega fyrir mér. Ég bara segi það hér og nú.“
Þú sérð það ekki fyrir þér en þú segir ekki já eða nei við þessu, bætti Frosti við og Benedikt svaraði:
„Ég skal bara segja: Það verður ekki slík ríkisstjórn. Það verður ekki ríkisstjórn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar eftir kosningar.“
Greinir á við stjórnarflokkana í öllum megin málum
Á öðrum stað í viðtalinu, sem fram fór eftir að samræður stjórnarandstöðuflokkanna lágu fyrir, var Benedikt spurður um hvers vegna hann tæki þeim svona illa þar sem áherslur Viðreisnar rímuðu að ýmsu leyti við umbótaraddir stjórnarandstöðuflokkanna. Því komi á óvart að þeir hafi sagt pass við þeim viðræðum?

„Og ég tel það afar ólíklegt að við getum náð saman við þá. Ég held að það sé miklu líklegra að við náum saman við aðra flokka. En, við teljum að samtalið eigi að hefjast þegar þjóðin hefur sagt sitt,“ sagði Benedikt sem kallaði stjórnarflokkana þá og við önnur tilefni Framsóknarflokkana tvo.
Staðan er því verulega snúin, svo ekki sé meira sagt. Og víst er að Guðni Th. Jóhannesson mun þurfa á allri sinni sagnfræðilegu þekkingu á forsetaembættinu að halda til að finna slóða úr þeirri mýri sem lýðræðið virðist hafa keyrt út í.
Sitt sýnist hverjum um næstu ríkisstjórn en greiða má nokkrum mögulegum stjórnum atkvæði sitt í könnuninni að neðan.