Viðskipti innlent

Segir hækkunina í samræmi við fyrra verklag

Sæunn Gísladóttir skrifar
Heimavellir taka um næstu mánaðarmót við yfir 700 íbúðum við Ásbrú.
Heimavellir taka um næstu mánaðarmót við yfir 700 íbúðum við Ásbrú. Vísir/Heiða
Um mánaðarmótin hækkar leiga í yfir 700 leiguíbúðum á Ásbrú í Reykjanesbæ. Stundin greindi fyrst frá þessu, en íbúar á Ásbrú fengu bréf um hækkunina fyrir helgi.

Tilkynnt var fyrir nokkrum vikum um sameingu leigufélagsins Ásabyggðar, sem á og rekur íbúðirnar, og Heimavalla. Heimavellir er nú stærsta leigufélag landsins með yfir tvö þúsund íbúðir í rekstri.

Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla segir hækkunina tilkomna vegna hefðbundins verklags hjá Ásabyggð. „Við erum í raun og veru ekki búin að taka við félaginu, við gerum það ekki fyrr en núna í desember. Þeir aðilar sem hafa stjórnað Ásabyggð á síðustu árum hafa haft þann háttinn á að leiga tekur breytingum tvisvar á ári, á vorin og í desember. Það er engin breyting á því núna frá því sem verið hefur. Ég geri ráð fyrir að breytingin núna verði um fimm prósent,“ segir Guðbrandur.

„Okkar samningar eru vísitölutryggðir, en þarna hafa menn unnið þetta þannig að leigan hækki tvisvar á ári. Til viðbótar hefur leigan þarna verið mjög lág og menn hafa eitthvað verið að hækka hana, en reynt að gera það mjög varlega til þess að leigjendur finni ekki mikið fyrir því,“ segir Guðbrandur.

Hann segir þetta vinnulag Ásabyggðar því fyrir fram ákveðið, en sjálfur myndi hann vilja styðjast við vísitölutryggða leigusamninga. „Ef við myndum ráða myndum við frekar vilja hafa vísitölutryggða samninga þannig að leigan breytast í takt við það.“

Guðbrandur segir að mikill skortur ríki á íbúðum á Suðurnesjum. „Auðvitað ræður þarna framboð og eftirspurn, en við höfum lagt áherslu á sanngjarna leigu. Þau leigusöfn sem við höfum tekið yfir höfum við ekki farið í meiriháttar hækkunarprógrömm í. Við höfum reynt að vinna með leigjendum ef hefur þurft að hækka leigu og gert það í áföngum. Við erum ekki að fara að horfa á einhverjar stórkostlegar leiguverðshækkanir þarna bara vegna þess að við komum þangað inn sem nýr eignaraðili, það er langt því frá.“


Tengdar fréttir

Guðbrandur ráðinn til Heimavalla

Guðbrandur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri leigufélagsins Heimavalla og mun hann hefja störf föstudaginn 1. apríl 2016.

Verður stærsta leigufélag landsins

Leigufélagið Ásabyggð á Ásbrú sameinast Heimavöllum leigufélagi og mun sameinað félag undir merkjum Heimavalla hafa um tvö þúsund íbúðir í rekstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×