Tölvur lauma sér á sífellt fleiri staði Sæunn Gísladóttir skrifar 21. nóvember 2016 09:28 SVEF tríó er fyrirlestrarröð á vegum Samtaka vefiðnaðarins sem miðar að því að taka kjarnastarf vefmála fyrir með skipulögðum hætti. Mynd/Aðsend
Spennandi dagskrá liggur fyrir á SVEF tríó Forritarans næsta þriðjudag. Þrír valinkunnir forritarar úr ólíkum kimum bransans munu flytja erindi en þetta er viðburður sem enginn forritari eða sérfræðingur í vefmálum má láta framhjá sér fara. SVEF tríó er fyrirlestrarröð á vegum Samtaka vefiðnaðarins sem miðar að því að taka kjarnastarf vefmála fyrir með skipulögðum hætti þar sem að fagfólk í vefiðnaðinum kemur saman og miðlar af þekkingu sinni og reynslu. Vísir náði talið af Má Örlygssyni forritara hjá Hugsmiðjunni, sem segir forritun vera hröðum skrefum að breytast í algert grunnfag fyrir flesta þætti nútímasamfélags. „Daglegt umhverfi okkar er að verða sífellt tæknivæddara og tölvur lauma sér á sífellt fleiri staði og sífellt smærri glufur - jafnvel án þess að við endilega tökum eftir því. Það er orðið svo að á sumum sviðum verðum við meira vör við það ef tölvutæknina vantar, heldur en hitt. Samhliða þessu eyðir venjuleg manneskja svo meiri og meiri tíma í að stara á skjái og kljást við alls konar notendaviðmót, og til að þau verði sem best þarf náið samtal milli hönnunar og forritunar." „Megnið af nýsköpun, í nánast öllum greinum, styðst beint eða óbeint við tölvutækni og því er það gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem samfélag að hlúa vel að hönnunar- og tæknimenntun og starfsumhverfi hugbúnaðarfyrirtækja." Á SVEF tríói um Forritarann ætlar Már að tala um CSS útlitsforritun - hvernig CSS hefur þróast, og hvernig breiðari flóra í tölvum og snjalltækjum kallar á að við tileinkum okkur eilítið nýja nálgun í notkun CSS - bæði á útlitshönnunarstiginu og í sjálfri forrituninni. Einnig mun Eva Dögg Steingrímsdóttir forritari hjá OZ fjalla um hvernig React og React Native hafa nýst í verkefnum síðustu missera. Þriðja og síðasta innslagið kemur frá Arnari Páli Birgissyni forritara hjá vefdeild Landsbankans og tekur hann snúning á TypeScript sem en það er gagnlegt hverjum forritara sem kýs að nota það ofan á JavaScript. Fundarstjóri verður Ólafur Sverrir Kjartansson, forritari hjá Ueno og stjórnarmaður SVEF. Áhugaverð og fróðleg dagskrá sem fagfólk í vefiðnaðinum á Íslandi ætti ekki að missa af. Fundurinn fer fram á Nauthóli og hefst kl 11:30. Hér má nálgast viðburðinn.
Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent Hvernig verður steypa græn? Samstarf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Salmonella í Pekingönd Neytendur Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira