Fótbolti

"90% líkur á að Zlatan fari til LA Galaxy“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. Vísir/Getty
Samkvæmt blaðamanni Sky Italia er langlíklegast að Zlatan Ibrahimovic gangi til liðs við LA Galaxy í bandarísku MLS-deildinni í sumar.

Eins og sjá má hér fyrir neðan telur Alessandero Alciato að það séu 90 prósent líkur á að Zlatan fari til Los Angeles í sumar en tíu prósent líkur á að hann verði leikmaður Manchester United.

Zlatan tilkynnti á Twitter-síðu sinni í morgun að hann muni fara frá franska liðinu PSG í lok tímabils og að leikur PSG gegn Nantes á morgun verði síðasti leikur hans á Parc des Princes.

Sjá einnig: Zlatan yfirgefur PSG: „Kom sem kóngur, fer sem goðsögn“

Chris Klein, forseti Galaxy, vildi ekki tjá sig um málið en benti þó á að félagið væri nú þegar með þrjá „designated players“ og það væri ekki í plönunum að losa neinn þeirra undan samningi.

Þeir þrír „stjörnuleikmenn“ sem Galaxy er með í sínum röðum eru Robbie Keane, Steven Gerrard og Giovani dos Santos. Samningar þeirra Keane og Gerrard renna út í desember á þessu ári.

„Maður veit aldrei. Annað eins hefur nú gerst áður,“ sagði Klein enn fremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×