Viðskipti innlent

Hver Íslendingur eyðir yfir 50 þúsund í happadrætti- og spil

Sæunn Gísladóttir skrifar
Að meðaltali spilar hver íbúi landsins fyrir 54.182 krónur í happdrættum, getraunum, lottó, bingó, spilakössum hjá innlendum aðilum á hverju ári.
Að meðaltali spilar hver íbúi landsins fyrir 54.182 krónur í happdrættum, getraunum, lottó, bingó, spilakössum hjá innlendum aðilum á hverju ári. Vísir/Vilhelm
Að meðaltali spilar hver íbúi landsins fyrir 54.182 krónur í happdrættum, getraunum, lottó, bingó, spilakössum hjá innlendum aðilum. Séu dregnir frá vinningar sem hver íbúi hefur fengið, þá hefur hver íbúi eytt 21.007 krónur að meðaltali á innlenda spilamarkaðnum. Þetta kemur fram í frétt á vef Innanríkisráðuneytisins.

Velta innlenda happdrættis- og spilamarkaðarins árið 2015 var 17,9 milljarðar króna hjá fyrirtækjum sem starfa með leyfi yfirvalda. Af þessum fjárhæðum er greitt í vinninga og þá standa eftir svokallaðar brúttóspilatekjur (BST) 6,9 milljarðar króna. Þetta er alþjóðleg skilgreining, Gross Gaming Revenue; GGR.

Á þessu ári er fyrst áætlað vegna sölu happdrætta sem þarf að sækja um leyfi fyrir í hvert skipti. Að teknu tilliti til þess er aukning á BST tæp 23 prósent frá árinu 2014. Vitað er að Íslendingar kaupa þjónustu veðmála- og spilafyrirtækja erlendis á netinu. Sú velta er ekki inni í þessum tölum.

Mikil þróun hefur orðið á þessum markaði frá því að nánast var aðeins í boði að kaupa happdrættismiða. Enn er verið að þróa þennan markað og það sést meðal annars á kaupum á þjónustu á erlendum vefsíðum sem er ólögleg starfsemi hér á landi. Þá er enn frekar verið að þróa markaðinn og til verður enn ný eftirspurn eftir nýrri þjónustu á þessu sviði. Þar er sýndarveruleiki í sókn.

Erlend netspilun

Á árinu 2012 skilaði dr. Daníel Þór Ólason, dósent við Háskóla Íslands, skýrslu til innanríkisráðuneytis um spilahegðun og algengi spilavanda meðal fullorðinna Íslendinga árið 2011. Samkvæmt rannsóknum sem lágu þar að baki kemur fram í skýrslunni að aukning hafi orðið á spilun á erlendum netsíðum frá árinu 2007. Ekki hafa verið gerðar rannsóknir á netspilun Íslendinga erlendis síðan, svo vitað sé, en samkvæmt upplýsingum frá kortafyrirtækjum, sem rekin eru hér á landi, þá keyptu Íslendingar fyrir 2,1 milljarð á erlendum netsíðum á árinu 2015. Þessi fjárhæð er 11,7 prósent af innlendri veltu á þessum markaði. Ólöglegt er að bjóða upp á þessi spil á Íslandi. Ekki er ljóst hversu há fjárhæð kom til baka í vinningum. Þá er hugsanlegt og líklegt að eitthvað sé spilað með erlendum kreditkortum, en engar upplýsingar eru til um það.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×