Viðskipti innlent

Katrín Júlíusdóttir ráðin framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Katrín Júlíusdóttir fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar hefur verið ráðin framkvæmdastjóri SF.
Katrín Júlíusdóttir fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar hefur verið ráðin framkvæmdastjóri SF. Vísir/Stefán
Katrín Júlíusdóttir, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.

Katrín var alþingismaður frá 2003-2016, þar af iðnaðarráðherra frá 2009-2012 og fjármála- og efnahagsráðherra frá 2012-2013. Hún útskrifaðist með MBA frá Háskólanum í Reykjavík 016 og nam mannfræði við Háskóla Íslands frá 1995-1999.

„Ég er mjög spennt fyrir að takast á þetta nýja og krefjandi starf. Í störfum mínum í stjórnmálum í gegnum tíðina hefur það alltaf verið mér mikið kappsmál að vinna að sameiginlegri sýn og ná árangri í þeim verkefnum sem liggja fyrir. Starfsumhverfi fjármálafyrirtækja er sífellt að breytast og ég hlakka til að fá að taka þátt í því að koma að verkefnum sem tengjast þeirra hagsmunamálum,” segir Katrín.

Samtök fjármálafyrirtækja eru heildarsamtök fjármálafyrirtækja á Íslandi. Tilgangur og meginverkefni samtakanna eru að vera málsvari fjármálafyrirtækja í hagsmunamálum þeirra og stuðla að því að starfskilyrði þeirra séu samkeppnishæf. SFF gæta hagsmuna aðildarfélaga samtakanna gagnvart stjórnvöldum, eftirlitsstofnunum, almenningi og atvinnulífi og aðstoða þau við að byggja upp heilbrigt og traust fjármálakerfi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×