Fótbolti

Dramatík og áhorfendamet þegar Dagný og félagar biðu lægri hlut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dagný kom inn á þegar tuttugu mínútur lifðu af venjulegum leiktíma og skömmu síðar jöfnuðu heimakonur metin.
Dagný kom inn á þegar tuttugu mínútur lifðu af venjulegum leiktíma og skömmu síðar jöfnuðu heimakonur metin.
Dagný Brynjarsdóttir og liðsfélagar hennar í Portland Thorns féllu úr leik í undanúrslitum National Womens Soccer League í Bandaríkjunum í kvöld eftir 4-3 tap gegn Western New York Flash.

Leikurinn var stórkostleg skemmtun en leikurinn fór fram að viðstöddum rúmlega tuttugu þúsund stuðningsmönnum heimaliðsins á Providence Park í Portland. Um aðsóknarmet er að ræða í úrslitakeppni NWSL en Portland sigraði í deildarkeppninni á dögunum.

Gestirnir frá New York komust í 2-0 í fyrri hálfleik með mörkum Sam Mewis og Makenzy Doniak. Heimakonur, vel studdar á heimavelli sínum, minnkuðu muninn á 39. mínútu þegar fyrirliðinn Christine Sinclair skoraði fallegt mark.

 

Dagný kemur inn á.
Dagný kom inn á sem varamaður hjá Portland á 70. mínútu og skömmu síður dró til tíðinda. Emily Sonnet jafnaði á 77. mínútu eftir mikla baráttu í teig gestanna. Skömmu áður nældi Dagný sér í gult spjald.

Framlengja þurfti leikinn og komust gestirnir aftur tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik framlengingar með snyrtilegum mörkum. Liðsmenn Portland lentu endurtekið í vandræðum með innköst gestanna en þrjú af fjórum mörkum Flash komu eftir löng innköst. Aftur komst Portland inn í leikinn á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingar þegar Lindsey Horan af stuttu færi eftir að Dagný vann skallaeinvígi í teignum.

Síðari hálfleikur framlengingar var æsispennandi og fengu heimakonur færi til að jafna metin. Næst komust þær þegar skalli sem stefndi í netið var bjargað á síðustu stundu. En þögn sló á Providence Park þegar dómari leiksins flautaði til leiksloka eftir 123. mínútna leik, gestirnir fögnuðu þó vel enda komnir í úrslitaleikinn gegn Washington Spirit í Houston næstu helgi.

Dagný Brynjarsdóttir var að ljúka sínu fyrsta tímabili í atvinnumennskunni vestanhafs. Hún skoraði fimm mörk og lagði upp tvö og má vel við una við sína frammistöðu á meðal þeirra bestu í NWSL.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×