Viðskipti innlent

Aðalbjörg nýr útibússtjóri Arion banka á Snæfellsnesi

Atli Ísleifsson skrifar
Aðalbjörg A. Gunnarsdóttir.
Aðalbjörg A. Gunnarsdóttir. Mynd/arion banki
Aðalbjörg A. Gunnarsdóttir hefur verið ráðin nýr útibússtjóri Arion banka á Snæfellsnesi.

Aðalbjörg hefur gegnt starfi þjónustustjóra Arion banka á Grundarfirði og tekur við starfinu af Kjartani Páli Einarssyni sem látið hefur af störfum.

„Aðalbjörg mun jafnframt taka við stjórnun útibúsins í Búðardal og verður hún því útibússtjóri þriggja útibúa bankans á Vesturlandi, í Grundarfirði, Búðardal og Stykkishólmi.

Aðalbjörg hefur unnið hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 2001 eða í rúm 15 ár og gegnt margvíslegum störfum innan bankans,“ segir í tilkynningu frá bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×