Viðskipti innlent

Starfsfólki gæti fjölgað um 2.000 á hálfu ári

Sæunn Gísladóttir skrifar
Búast má við langmestri fjölgun starfsmanna í byggingarstarfsemi, iðnaði og ferðaþjónustu á næstu sex mánuðum.
Búast má við langmestri fjölgun starfsmanna í byggingarstarfsemi, iðnaði og ferðaþjónustu á næstu sex mánuðum. Vísir/GVA
Niðurstöður könnunar Gallup meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins endurspegla góðar aðstæður í atvinnulífinu. Meta stjórnendur aðstæður með svipuðum hætti og á árabilinu 2004-2007. Vinnuaflsskortur er nokkur þar sem tæpur helmingur fyrirtækja finnur fyrir honum, en hann hefur þó ekki farið vaxandi frá síðustu könnun. Búast má við tæplega tvö prósent fjölgun starfsmanna á almennum vinnumarkaði á næstu sex mánuðum. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.

Stjórnendur búast við 2,0 prósent verðbólgu á næstu 12 mánuðum og að innlend aðföng hækki um rúmlega 1 prósent. Verðbólguvæntingar stjórnenda hafa minnkað og eru minni en þær hafa verið síðastliðin sex ár.

Góður gangur í atvinnulífinu

Vísitala efnahagslífsins, sem endurspeglar mun á fjölda stjórnenda sem meta aðstæður góðar og slæmar, er enn í hæstu hæðum eins og undanfarið ár. Yfirgnæfandi meirihluti stjórnenda, 83 prósent, telur aðstæður í atvinnulífinu góðar, en einungis 2 prósent að þær séu slæmar. Sjávarútvegurinn sker sig úr í samanburði atvinnugreina þar sem 12 prósent stjórnenda sjávarútvegsfyrirtækja telja aðstæður slæmar sem rekja má til sterks gengis krónunnar.

Aðstæður gætu enn batnað

Stjórnendur eru almennt sammála um að staðan í atvinnulífinu verði jafngóð eða betri eftir sex mánuði. Tæplega fjörutíu prósent telja að aðstæður batni, 52 prósent að þær verði óbreyttar en 9 prósent að þær versni. Minnst bjartsýni á framvinduna er meðal stjórnenda í sjávarútvegi, þar sem 28 prósent þeirra telja að aðstæður muni versna, en einnig ber á áhyggjum í byggingariðnaði, þar sem 15 prósent stjórnenda telja að aðstæður versni, og í flutningum og ferðaþjónustu þar sem 11 prósent telja að ástandið versni.

 

 

Yfir helmingur stjórnenda í iðnaði, verslun og byggingariðnaði segja skort vera á starfsfólki.Fréttablaðið/Vilhelm
Skortur á starfsfólki fer ekki vaxandi

Skortur á starfsfólki er óbreyttur frá síðustu könnun sem gerð var í maí sl. og telja 42 prósent stjórnenda skort ríkja á starfsfólki. Yfir helmingur stjórnenda í iðnaði, verslun og byggingariðnaði segja skort vera á starfsfólki, en um 40 prósent stjórnenda í flutningum og ferðaþjónustu. Minnstur skortur á starfsfólki er í fjármálastarfsemi, sjávarútvegi og þjónustugreinum.

Starfsmönnum gæti fjölgað um 2.100 á næstu 12 mánuðum

Rúmlega 30 þúsund starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum í könnuninni. Tæp fjöurtíu prósent stjórnenda þeirra sjá fram á fjölgun starfsmanna á næstu sex mánuðum, 5 prósent sjá fram á fækkun en 58 prósent búast við óbreyttum fjölda. Þegar svör stjórnenda eru vegin með stærð fyrirtækjanna fæst að starfsmönnum þeirra fjölgi um 1,8 prósent á næstu sex mánuðum. Sé sú niðurstaða færð yfir á almenna markaðinn í heild má búast við störfum þar fjölgi um rúmlega 2.100 á næstu sex mánuðum. Sem fyrr er búist við langmestri fjölgun í byggingarstarfsemi, iðnaði og ferðaþjónustu.

Innan við helmingur með fullnýtta framleiðslugetu

Tæplega helmingur stjórnenda, 46 prósent, telur ekki vandasamt að bregðast við óvæntri aukningu í eftirspurn eða sölu, sem er svipuð niðurstaða og fyrir hálfu ári síðan. Ástandið er erfiðast í byggingariðnaði. Ekki er búist við því að þessar aðstæður breytist næstu sex mánuði.

Búast við heldur meiri hagnaði á þessu ári

Töluvert fleiri stjórnendur búast við meiri hagnaði á þessu ári miðað við síðastliðið ár en þeir sem búast við að hann minnki. Um 39 prósent stjórnenda búast við að hagnaður fyrirtækjanna sem þeir stjórna, sem hlutfall af veltu, aukist milli ára en 19 prósent að hann minnki. Meirihluti stjórnenda í sjávarútvegi búast við minni hagnaði og 25 prósent stjórnenda í flutningum og ferðaþjónustu. Bjartsýni um aukinn hagnað er mest í verslun og þjónustu.

Fjárfestingar aukast mikið á árinu

Fjárfestingar fyrirtækjanna hafa aukist mikið á þessu ári samkvæmt könnuninni. Um 39 prósent stjórnenda segja fjárfestingar hafa aukist á árinu en 14 prósent að þær hafi minnkað miðað við árið 2015. Langmest aukning fjárfestinga er í byggingarstarfsemi og flutningum og ferðaþjónustu en aukning er í öllum atvinnugreinum nema fjármálastarfsemi.

Vænta stöðugs gengis krónunnar

Að jafnaði vænta stjórnendur þess að gengi  krónunnar styrkist um 1,3 prósent næstu 12 mánuði. 


Tengdar fréttir

Ekki meiri skortur á starfsfólki frá 2007

Tvöfalt hærra hlutfall fyrirtækja telur skort á starfsfólki í sumar miðað við fyrir ári. Þetta kemur fram í könnun Gallup meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins sem vísað er til í Peningamálum Seðlabankans sem komu út í gær.

Gengur afar illa að manna störf

Erfitt er að fá starfsfólk í fjölmörg störf á Íslandi. Þetta staðfesta framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hagfræðingur ASÍ, formaður RSÍ og formaður MATVÍS. Fleiri atvinnurekendur þurfa að leita til útlanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×