Ísland stefnir í hættu ímyndinni sem framleiðandi hreinnar orku Þorgeir Helgason skrifar 20. október 2016 07:00 Reykjanesvirkjun er raforkuver sem virkjar jarðvarma. vísir/vilhelm
Sala upprunaábyrgða úr landi getur skaðað þá ímynd Íslands að orkuframleiðsla landsins sé hrein og endurnýjanleg. Þetta kemur fram í úttekt sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lét gera um kerfi upprunaábyrgða raforku á Íslandi. Upprunaábyrgð er hreinleikavottun á raforku en á síðustu árum hafa íslensk orkufyrirtæki selt slík vottorð í miklu magni úr landi. Þegar slíkar vottanir eru seldar frá Íslandi til Evrópu þarf að taka með í útreikninga hér á landi samsvarandi magn af raforku sem seld er í Evrópu. Raforka sem framleidd er í Evrópu með jarðefnaeldsneyti og kjarnorku er því bókfærð sem íslensk raforkusala í stað þeirrar grænu orku sem seld er úr landi. Endurnýjanleg orka var því aðeins 39 prósent af raforkusölu hérlendis árið 2013, 37 prósent orkusölu voru vegna notkunar á jarðefnaeldsneyti og 24 prósent vegna notkunar á kjarnorku. Hlutfall endurnýjanlegrar orku var lægst árið 2013Í úttekt ráðuneytisins er sú spurning vakin upp hvers virði ímynd Íslands sé samanborið við þann hagnað sem orkufyrirtækin gætu haft af sölu upprunaábyrgða úr landi. Til dæmis er íslenskum fyrirtækjum óheimilt að auglýsa vörur sínar og þjónustu með tilvísun til 100 prósent endurnýjanlegrar orku ef þau hafa ekki keypt upprunavottorð af íslenskum orkufyrirtækjum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir í tilkynningu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins að brýnt sé að staðinn sé vörður um þá ímynd og staðreynd að á Íslandi sé eingöngu framleidd og seld endurnýjanleg orka. Sala orkufyrirtækja á upprunaábyrgðum úr landi samræmist ekki því markmiði að tryggja ímynd Íslands um hreina orkuframleiðslu.Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.vísir/Anton BrinkMikil sala var fyrstu árin á vottorðum en hún hefur dregist saman síðustu tvö ár. Vegna sölunnar er kjarnorkuúrgangur núna hluti af raforkuframleiðslu og -notkun hérlendis. Árið 2010 var enginn kjarnorkuúrgangur tengdur raforkunotkun hérlendis. Vegna sölu upprunaábyrgða mátti hins vegar rekja 2,6 tonn af geislavirkum úrgangi til raforkunotkunar hérlendis árið 2011. Árið 2012 var þetta magn 8,4 tonn og um 13 tonn árið 2013. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun, Orku náttúrunnar og HS Orku var hagnaður orkufyrirtækjanna um það bil 700 milljónir króna á árunum 2011 til ársloka 2015. Á síðustu tveimur árum hefur dregið úr sölu á upprunavottunum úr landi, en í fyrra var endurnýjanleg orka hér á landi 71% af raforkusölu. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent Hvernig verður steypa græn? Samstarf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Salmonella í Pekingönd Neytendur Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira