Pentair sér mikil tækifæri í Vaka Hafliði Helgason skrifar 9. nóvember 2016 10:00 Hermann Kristjánsson, forstjóri Vaka, Barney Leddy frá Pentair og Benedikt Hálfdanarson, framkvæmdastjóri Vaka. Kaup Penair á Vaka opna ný tækifæri beggja.
Endanlega hefur verið gengið frá kaupum Pentair á Vaka fiskeldiskerfum. Barney Leddy, fulltrúi Pentair sem leiðir starfsemi fyrirtækisins á sviði tækni fyrir fiskeldi segist sjá mikil tækifæri með kaupunum á Vaka. Pentair sérhæfir sig í hreinsun og dælingu vatns bæði fyrir neysluvatn og nýtingu og hreinsun vatns til atvinnustarfsemi. „Við erum með tækni sem nýtist vel í matvælaiðnaði, hreinsun neysluvatns og fyrir sundlaugar og Vaki er með tækni sem fellur vel að okkar vöruframboði og við teljum að saman höfum við mikla möguleika á að vaxa,“ segir Barney. Hann segir að Pentair hafi selt hreinsunarbúnað og þar hafi vaknað áhugi á að stækka frekar á þeim markaði. „Með vaxandi mannfjölda og bættum efnahag vex eftirspurn eftir gæðapróteini og við sjáum fyrir okkur að þessi markaður muni vaxa mikið.“ Hann segir Vaka vel rekið og sterkt fyrirtæki og tækifærin liggi í að sameina krafta, tækni og markaði til að ná enn betri árangri. Barney segir ekki uppi áætlanir um annað en að Vaki verði rekinn áfram í óbreyttri mynd. Íslenskt efnahagslíf hefur verið sveiflukennt, en Barney segir að ekki hafi verið mikið horft til þess. „Við skoðuðum að sjálfsögðu grunnþætti í efnahagslífinu, en við erum að fjárfesta í góðu fyrirtæki til langs tíma og við vitum að á þeirri vegferð geta orðið sveiflur. Við gerum ráð fyrir því.“
Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Hvernig verður steypa græn? Samstarf Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Salmonella í Pekingönd Neytendur Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira