Hagnaður Íslandsbanka helmingast Hafliði Helgason skrifar 10. nóvember 2016 07:00 Íslandsbanki hefur hagnast um 15,6 milljarða króna það sem af er ári. Fyrri uppgjör bankans hafa litast af einskiptishagnaði. vísir/Anton Brink
Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta á þriðja ársfjórðungi nam 2,5 milljörðum króna og lækkaði úr tæpum sex milljörðum króna fyrir sama fjórðung í fyrra. Arðsemi eigin fjár bankans af reglulegri starfsemi var 8,7% samanborið við 11,1% sama fjórðung í fyrra miðað við 15% eigið fé. Talsvert meira eigið fé er bundið í rekstri bankans, eða tæp 28%. Það liggur meðal annars í því að bankinn sótti sér 500 milljónir evra eða ríflega 60 milljarða í erlendu skuldabréfaútboði en þeir fjármunir voru meðal annars notaðir til að greiða víkjandi lán. Bankinn er því vel fjármagnaður.Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka.Það sem af er ári er hagnaður Íslandsbanka 15,6 milljarðar króna, en var 16,7 milljarðar fyrstu níu mánuði ársins 2015. Vaxtamunur bankans sem er munur á innlánum og útlánum var þrjú prósent samanborið við 2,9% árið áður. Vaxtamunur íslensku bankanna er hærri en í nágrannalöndunum. Jón Guðni Ómarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs bankans, segir skýringuna liggja annars vegar í hærra vaxtastigi og svo því að íslenskir bankar búi ekki við sömu stærðarhagkvæmni og erlendir bankar. Fyrri uppgjör bankans hafa litast af einskiptishagnaði, en uppgjör þriðja ársfjórðungs endurspeglar betur grunnrekstur hans. Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, segir uppgjör bankans sýna sterka stöðu á markaði og góðan undirliggjandi rekstur. Hún segir skuldastöðu heimila hafa batnað en í uppgjörinu sést að vanskil hafa minnkað verulega á síðustu misserum. „Vaxtatekjur jukust um 13% frá fyrra ári og stafar það fyrst og fremst af hærra vaxtaumhverfi og auknu eigin fé. Samkeppni í útlánum fer harðnandi, sem samhliða sívaxandi skattlagningu á fjármálakerfið mun gæta í arðsemi bankans til lengri tíma,“ segir Birna.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Hvernig verður steypa græn? Samstarf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Salmonella í Pekingönd Neytendur Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira