Fótbolti

Diouf um Gerrard: Ber virðingu fyrir leikmanninum en ekki manneskjunni | Myndband

Anton Ingi Leifsson skrifar
Diouf og Gerrard þegar þeir léku með Liveropol og Blackburn.
Diouf og Gerrard þegar þeir léku með Liveropol og Blackburn. vísir/getty
El Hadji Diouf, hinn skrautlegi sóknarmaður, vandar ekki hinum nýhætta Steven Gerrard, goðsagnakennda leikmanni Liverpool, kveðjurnar í nýju viðtali.

Diouf var í viðtali í frönskum sjónvarpsþætti þar sem hann lét Gerrard heyra það. Diouf hætti knattspyrnuiðkun á síðasta ári eftir athyglisverðan feril.

„Þegar ég kom til Liverpool sögðu þeir að það væru einhverjir leikmenn sem þú mættir ekki snerta, en ég snerti þá,“ sagði Diouf, en Emmanuel Petit, fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea, var einnig í settinu.

„Ég virði leikmanninn, risa stór leikmaður, en manneskjuna, ber ég ekki virðingu fyrir og ég sagði honum það. Ég lét hann vita af því," sagði Diouf, en þetta athyglisverða viðtal má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×