„Hressileg“ hækkun fasteignaverðs í október Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. nóvember 2016 09:13 Meðalviðskipti með fasteignir á mánuði eilítið meiri það sem af er ári nú heldur en var á öllu árinu 2015. Vísir/Anton
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um tvö prósent milli mánaða í október að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans, þar sem hækkunin er sögð „hressileg.“ Verð í fjölbýli hækkaði um 1,8 prósent og verð á sérbýli hækkaði um 2,2 prósent en síðustu tólf mánuði hefur fjölbýli hækkað um 13,6 prósent, sérbýli um 14,2 prósent og er heildarhækkunin 13,6 prósent. Í Hagsjánni kemur fram að þetta séu mestu árshækkanir sem sést hafa allt frá árinu 2007. „Það er athyglisvert að árshækkun sérbýlis er meiri en á fjölbýli annan mánuðinn í röð og hefur sú staða ekki verið uppi síðan vorið 2012. Allt frá þeim tíma hefur árshækkun fjölbýlis verið meiri. Síðustu 6 mánuði hefur sérbýlið hækkað um 10,6% og fjölbýli um 8,6%. Sérbýli hefur því tekið nokkuð fram úr á allra síðustu mánuðum,“ segir í Hagsjánni. Þá eru meðalviðskipti með fasteignir á mánuði eilítið meiri það sem af er ári nú heldur en var á öllu árinu 2015. Viðskipti með fjölbýli eru svipuð en viðskipti með sérbýli hafa verið mun líflegri en í fyrra.Hagsjána má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Hvernig verður steypa græn? Samstarf Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Salmonella í Pekingönd Neytendur Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira