Viðskipti innlent

Tölvur lauma sér á sífellt fleiri staði

Sæunn Gísladóttir skrifar
SVEF tríó er fyrirlestrarröð á vegum Samtaka vefiðnaðarins sem miðar að því að taka kjarnastarf vefmála fyrir með skipulögðum hætti.
SVEF tríó er fyrirlestrarröð á vegum Samtaka vefiðnaðarins sem miðar að því að taka kjarnastarf vefmála fyrir með skipulögðum hætti. Mynd/Aðsend
Spennandi dagskrá liggur fyrir á SVEF tríó Forritarans næsta þriðjudag. Þrír valinkunnir forritarar úr ólíkum kimum bransans munu flytja erindi en þetta er viðburður sem enginn forritari eða sérfræðingur í vefmálum má láta framhjá sér fara.

SVEF tríó er fyrirlestrarröð á vegum Samtaka vefiðnaðarins sem miðar að því að taka kjarnastarf vefmála fyrir með skipulögðum hætti þar sem að fagfólk í vefiðnaðinum kemur saman og miðlar af þekkingu sinni og reynslu. 

Vísir náði talið af Má Örlygssyni forritara hjá Hugsmiðjunni, sem segir forritun vera hröðum skrefum að breytast í algert grunnfag fyrir flesta þætti nútímasamfélags.

„Daglegt umhverfi okkar er að verða sífellt tæknivæddara og tölvur lauma sér á sífellt fleiri staði og sífellt smærri glufur - jafnvel án þess að við endilega tökum eftir því. Það er orðið svo að á sumum sviðum verðum við meira vör við það ef tölvutæknina vantar, heldur en hitt. Samhliða þessu eyðir venjuleg manneskja svo meiri og meiri tíma í að stara á skjái og kljást við alls konar notendaviðmót, og til að þau verði sem best þarf náið samtal milli hönnunar og forritunar."

„Megnið af nýsköpun, í nánast öllum greinum, styðst beint eða óbeint við tölvutækni og því er það gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem samfélag að hlúa vel að hönnunar- og tæknimenntun og starfsumhverfi hugbúnaðarfyrirtækja."

Á SVEF tríói um Forritarann ætlar Már að tala um CSS útlitsforritun - hvernig CSS hefur þróast, og hvernig breiðari flóra í tölvum og snjalltækjum kallar á að við tileinkum okkur eilítið nýja nálgun í notkun CSS - bæði á útlitshönnunarstiginu og í sjálfri forrituninni.

Einnig mun Eva Dögg Steingrímsdóttir forritari hjá OZ fjalla um hvernig React og React Native hafa nýst í verkefnum síðustu missera. Þriðja og síðasta innslagið kemur frá Arnari Páli Birgissyni forritara hjá vefdeild Landsbankans og tekur hann snúning á TypeScript sem en það er gagnlegt hverjum forritara sem kýs að nota það ofan á JavaScript.

Fundarstjóri verður Ólafur Sverrir Kjartansson, forritari hjá Ueno og stjórnarmaður SVEF. Áhugaverð og fróðleg dagskrá sem fagfólk í vefiðnaðinum á Íslandi ætti ekki að missa af.

Fundurinn fer fram á Nauthóli og hefst kl 11:30. Hér má nálgast viðburðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×