Fótbolti

Arnór Ingvi kominn í jólafrí

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason. vísir/getty
Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason hefur staðfest að hann sé rifbeinsbrotinn.

Arnór Ingvi lagði upp mark í sigri um helgina en varð svo að fara af velli vegna meiðslanna.

Hann staðfesti svo á Instagram-síðu sinni í dag að rannsókn hefði leitt í ljós að hann væri rifbeinsbrotinn.

Hann er því kominn í jólafrí frá boltanum og ætti að hafa nægan tíma til þess að kaupa síðustu jólagjafirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×