Innlent

Berst fyrir lífinu í Primaloft úlpu á setustofunni

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Ekki er vitað hversu lengi faðir Jóns Björgvins verður inni á setustofu. Unnið er að því að koma honum í herbergi.
Ekki er vitað hversu lengi faðir Jóns Björgvins verður inni á setustofu. Unnið er að því að koma honum í herbergi. mynd/jón björgvin
Jón Björgvin Björnsson, sonur krabbameinssjúks manns, kom að föður sínum í gær þar sem hann lá inni á ískaldri setustofu á krabbameinsdeild Landspítalans. Faðir hans hafði þá legið inni á gjörgæsludeild í öndunarvél í níu daga og barist fyrir lífi sínu. Jón Björgvin segir ástandið á spítalanum ferlegt.

„Hann var í Primaloft úlpunni sinni þegar ég kom í gærkvöldi og hafði verið í henni allan daginn. Þetta herbergi er ekkert hitað en ofnarnir voru settir í gang þegar hann kom þangað um hádegið í gær. Hann er búinn að grennast töluvert, enda búinn að vera í miklum veikindum, og hefur orðið fyrir miklum blóðmissi. Þannig að það er ekkert auðvelt fyrir hann að halda á sér hita,“ segir Jón Björgvin, en RÚV greindi fyrst frá.

Óttast frekari veikindi

Jón Björgvin segist óttast það að pabbi hans fái lungnabólgu sökum kuldans. „Hann fékk líka blóðtappa í lungun, hann hefur orðið fyrir blóðmissi og hann var í öndunarvél en þá er mikil hætta á að hann fái lungnabólgu – svo ég var ekki beint sáttur þegar ég sat hjá honum í gær.“

Setustofunni hefur verið lokað af á meðan faðir Jóns liggur þar, sem Jóni þykir ekki síður gagnrýnivert, enda sé með þessu búið að loka á aðgang sjúklinga að rýminu.

„Ég kom þarna í gær og þetta er bara hlægilegt. En hann var spurður og hann er tilbúinn til þess að vera kurteis við sína hjúkrunarkonu og annað fólk sem hefur hugsað vel um hann. Hann vill ekki segja neitt neikvætt við þau.“

Læti í þokkabót

Þá segir Jón Björgvin að í ofanálag sé verið að byggja sjúkrahótel beint fyrir framan glugga setustofunnar, og að því fylgi tilheyrandi hávaði og röskun. Faðir hans geti því lítið hvílst.  „Honum finnst þetta auðvitað ferlegt að þurfa að liggja þarna og vildi helst komast heim til sín. En hann er ekki í neinu ástandi til þess að fara heim og verður að vera þarna fram yfir áramót.“

Jón Björgvin segist hafa rætt við starfsfólk spítalans, sem ætli að reyna að finna lausn á málinu.

Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir birti á dögunum myndir frá Landspítalanum þar sem sjá má leka, myglu og bilaða lyftu, svo fátt eitt sé nefnt, en nýjustu færslu hans má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Fjöldi bygginga LSH myglu að bráð

Landspítalinn segir ekki nægilega mikið gætt að endurbyggingu húsnæðis spítalans sem liggi undir skemmdum vegna raka og myglu. Að mati framkvæmdastjóra rekstrarsviðs vanti upp á að geta tekið á málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×