Frábær leikur Söru dugði ekki í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2016 10:30 Sara Rún Hinriksdóttir. Vísir/Stefán
Íslenska körfuboltakonan Sara Rún Hinriksdóttir átti sinn besta leik á háskólaferlinum í nótt en því miður dugði það ekki til sigurs. Canisius varð að sætta sig við 77-68 tap á móti sterku liði Morehead og hefur Íslendingaliðið þar með tapað 8 af fyrstu 10 leikjum tímabilsins. Sara Rún, sem kemur frá Keflavík, gerði svo sannarlega sitt til þess að hjálpa sínu liði í þessum leik. Sara var með 29 stig, 9 fráköst og 2 stoðsendingar á 34 mínútum. Sara Rún hitti úr 13 af 18 skotum sínum utan af velli þar á meðal eina þriggja stiga skotinu sínu.WBB: @CanisiusWBB gets a 29-pt performance from Sara Hinriksdottir but the #Griffs fall to Morehead State 77-68. pic.twitter.com/Ugko7yyZSe — GoGriffs (@GoGriffs) December 20, 2016 Margrét Rósa Hálfdanardóttir var með 9 stig en hún gaf flestar stoðsendingar í liðinu eða 9 talsins og tapaði auk þess bara einum bolta á þeim 35 mínútum sem hún spilaði. Sara Rún skoraði fjórar af körfum sínum í leiknum eftir stoðsendingu frá Margréti Rósu og Sara átti einnig eina stoðsendingu á Margréti. Íslensku stelpurnar spiluðu mest í Canisius-liðinu og voru efstar hjá liðinu í stigum (Sara), fráköstum (Sara), stoðsendingum (Margrét) og vörðum skotum (Sara). Sara Rún Hinriksdóttir er með 15,5 stig, 5,2 fráköst og 2,8 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu til þessa en þetta er hennar annað ár í skólanum. Margrét Rósa Hálfdanardóttir, sem er á sínu þriðja ári í skólanum er með 9,1 stig, 2,4 fráköst og 3,5 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Körfubolti Mest lesið „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stúkan tæklar stóru málin og Guðrún gæti orðið meistari Fótbolti „Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“ Sport Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira